Innihald (um 20 stk):
- 130gr hafrahveiti (setjið heila hafra í matvinnsluvél eða blandara)
- 160gr hafrar
- 1 tsk matarsódi
- 3 skeiðar Plantforce vanilla próteinduft (60gr)
- 1 tsk sjávarsalt
- 1 dl möndlusmjör
- 6 döðlur
- 1 dl maple síróp
- 3 msk kókosolía
- 1 tsk vanilla extract
- 6 msk (90 ml) rísmjólk
- 1 plata 70% súkkulaði (skera smátt)
Aðferð:
- Kveikið á ofninum í 175°C, undir og yfir hita.
- Setjið þurrefnin í stóra skál.
- Blandið saman möndlusmjöri, maple sírópi, vanillu extracti, kókosolíu, döðlum og rísmjólk í blandara eða matvinnsluvél. Bætið því síðan út í stóru skálina með þurrefnunum ásamt súkkulaðibitunum og blandið saman með sleif.
- Mótið hringlaga kökur (sirka 20 stk.), setjið á bökunarpappír og inn í ofn í 18-22 mínútur á 175°C.
Uppskrift frá likamiogheilsa.is