SÖNGSKÁLAR & HLJÓÐFÆRI
Tónheilun er hljóðmeðferð sem byggir á hugmyndafræðinni að hver hluti líkama okkar - ásamt alheiminum - skapar ákveðna tíðni. Tíðni hljóðfæranna hefur áhrif á tíðni líkamans.
Allt í alheiminum er búið til úr titring (e. vibrations). Söngskálar, handpönnur, chimes og fleiri hljóðfæri vinna með þessa tíðni og þegar hljóðtíðnin flæðir í gegnum líkama okkar þá veldur hún því að frumurnar fara á hreyfingu í mismunandi áttir á mismunandi hraða, í takt við hljóðbylgjuna.
Hljómurinn fer inn í frumur okkar, kemur jafnvægi á þær og endurnýjar þær. Rannsóknir hafa sýnt fram á að hljóð hefur bein áhrif á líkamann, bæði andlega og líkamlega. Til dæmis vöðvana, taugakerfið, hjartslátt og púls, meltingarferli líkamans og blóðrásarkerfið.