Bahé Revive - Barefoot & Grounding Íþróttaskór
Jarðtengdir barefoot skór frá Bahé
Revive Bahé skórnir tengja þig aftur við jörðina - án þess að þurfa að vera berfætt/ur. Ásamt því að vera náttúrulega hannaðir í kringum fótinn og tryggja því nægilegt pláss fyrir tærnar & náttúrulega vöðvavirkni.
Fyrstu & einu jarðtengdu barefoot íþróttaskórnir á markaðnum!
Venjulegir íþróttaskór með upphækkun (flestir nútímaskór) geta valdið rangri líkamsbeitingu þar sem við náum ekki að virkja aftari vöðvakeðju líkamans fullnægjandi sem býr til aukinn þrýsting á hné og mjaðmir.
Barefoot skór geta meðal annars aukið styrk í fótum, hjálpað til við aflögun á tábergslið (e. bunion), hjálpað til við að meðhöndla iljarfellsbólgu (e. plantar fasciitis), barefoot skór eru einnig góðir fyrir flatar fætur og geta minnkað verki í baki & mjöðmum, ásamt fleiru.
Barefoot skór veita fótunum meira frelsi, þeir eru með breiðu táboxi og sveigjanlegum og þunnum sóla. Þeir stuðla að náttúrulegri hreyfingu fótanna þannig að vöðvar, sinar og liðbönd vinna betur til að viðhalda jafnvægi og betri stjórn, sem leiðir til bættrar líkamsstöðu, sterkari vöðva og sina, betra jafnvægis og meiri samhæfingu.
Kostir þess að vera í skóm sem veita jarðtengingu:
- Aukið blóðflæði, sem eykur árangur og endurheimt
- Jöfnun á streituhormónum líkamans svo sem kortisóls sem leiðir til betri svefngæða
- Dregur úr bólgum - ásamt fleiru!