Kristal söngskál 25cm D (Sacral Chakra)
Kristal söngskál 25cm D (Sacral Chakra)

Kristal söngskál 25cm D (Sacral Chakra)

Venjulegt verð 36.200 kr
Unit price  per 

Bergkristall - með hverri kristalskál fylgir gúmmíhringur til að tryggja að skálin er örugg á jörðinni. Á þann hátt er betri hljómur. 
Einnig fylgir leðurprik með hverri kristalskál. 

Hljómur: D
Stærð: 25 cm
Orkustöð: Sacral Chakra
440hz

Kristal söngskálar eru frábærar við orkuheilun, til að hreinsa umhverfið og sem hugleiðsluverkfæri, hljómurinn kemur huganum í djúpt hugleiðsluástand.

Allt í alheiminum er búið til úr titring (e. vibrations). Kristalskálar vinna með þessa alheimsorku og færa hana inn í líkamann og endurvekja okkur. Þegar hljóðtíðnin flæðir í gegnum líkama okkar þá veldur hún því að frumurnar fara á hreyfingu í mismunandi áttir á mismunandi hraða, í takt við hljóðbylgjuna. Hljómurinn fer inn í frumur okkar, kemur jafnvægi á þær og endurnýjar þær.

Rannsóknir hafa sýnt fram á að hljóð hefur bein áhrif á líkamann, bæði andlega og líkamlega. Til dæmis vöðvana, taugakerfið, hjartslátt og púls, meltingarferli líkamans og blóðrásarkerfið.
Tónar kristalskálanna eru eitt öflugasta form heilunar sem fyrirfinnst í dag.

Dr. Mitchell Gaynor í New York hefur verið að vinna með hljóð í krabbameinsmeðferðum.  Hann segir að hver einasta fruma líkamans skynji og heyri hljóminn frá skálunum. Ein ástæða fyrir því að hljóð læknar líkamann er vegna þess að það snertir okkur svo djúpt og umbreytir okkur.

Einnig hefur það mikil áhrif á tilfinningavirkni og andlega heilsu. Þær vinna vel gegn stressi , streitu, þunglyndi, sársauka og fleira. Hljóð getur leyst ójafnvægi á öllum stigum lífeðlisfræðilegrar virkni. Þar af leiðandi spila kristalskálar og ákveðinn hljómur jákvætt hlutverk í meðferð við nánast öllum sjúkdómum.

Rannsóknir Dr. Mitchell Gaynor sýna að hljóðbylgjur frá skálunum hafa áhrif á hreyfitruflanir sem finnast í krabbameinsfrumum og valda hljóðbylgjurnar mjög jákvæðum umbreytingum.

Kristalskálar geta því hjálpað okkur að komast í tengsl við uppruna okkar og gera okkur því móttækileg fyrir þeirri græðandi og heilandi orku sem fyrirfinnst innra með okkur.